Hvað skaraði fram úr á netinu árið 2011?

Lesendum Vísis gefst nú kostur á að velja það sem hefur vakið athygli þeirra og aðdáun á vafri þeirra um vefheima síðustu misseri.

Fram til miðnættis 25. janúar verður opið fyrir atkvæði almennings til Nexpo-vefverðlaunanna hér á Vísi. Þau verða síðan afhent með pompi og prakt 27. janúar og verður verðlaunaafhendingin í beinni útsendingu á Vísi.

Veitt eru verðlaun í nokkrum flokkum og gefst lesendum tækifæri á að velja það sem skaraði framúr í hverjum flokki til verðlaunanna. Það er sáraeinfalt að taka þátt, veldu einn tilnefndan í hverjum flokki og ýttu á takkann neðst á síðunni til að kjósa.

Tekið var á móti tilnefningum almennings í desember og bárust þær í þúsundum. Dómnefnd fór yfir tillögurnar og raðaði upp í tilnefningarnar í kosningunni hér fyrir neðan. Í lok kosningar tekur dómnefnd síðan við niðurstöðunum.

Nexpo-vefverðlaunin voru veitt í fyrsta skipti í fyrra við góðar undirtektir. Viðburðafyrirtækið Silent stendur að verðlaununum í samstarfi við Samsung. Nánari upplýsingar er að finna á Facebook-síðu Nexpo.

KOSNINGUNNI ER LOKIÐ!
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
DÓMNEFND
  • Finnur Pálmi Magnússonproduct owner@gommit
  • Rósa Stefmargmiðlunarhönnuður@rosastef
  • Þóranna K. Jónsdóttirmarkaðseinkaþjálfun- og ráðgjöf@thoranna
  • Þórarinn Hjálmarssonevangelist hjá bland.is@thorarinnh
  • Þorsteinn Már Gunnlaugssonvefstjóri@tmar78